MAC Heroine |
Heroine frá MAC hefur í mjög langan tíma verið á óskalistanum mínum. Mig hefur langað í hann síðan ég sá hann fyrst í myndbandi frá Pixiwoo á youtube fyrir nákvæmlega ári uppá daginn. Ándjóks. Hann kom út í Limited Edition línu sem hét Fashion Sets, en hann var uppseldur áður en ég náði að næla mér í hann fyrir ári. Ég hef samtals leitað af honum í þrem löndum en hann var aldrei til, fyrr en í dag. En MAC kringlunni fékk hann í fyrsta skiptið í dag síðan Fashion Sets línan kom út.
Held að ég sé góð í varalitakaupum í dáldin tíma. Lýg því ekki að ég hef keypt svona 5 varaliti seinasta mánuðinn svo það er kannski kominn tími til að slaka á (samt ekki).
Horfðu á myndbandið sem ég talaði um hér
Naglalakkið sem ég er með á myndinni er Essie Ballet Slippers
Langar í hann, svo flottur!
SvaraEyða